picture12.jpg

Fréttir

Haustþing Ríkis Vatnajökuls

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði stóð fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið var umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og var málþingið opið öllum.

 Málþingið var tvískipt þar sem fyrri daginn var horft til ferðaþjónustunnar á landinu í heild sinni og gæði umhverfis- og skipulagsmála rædd. Frummælendur komu úr ýmsum áttum og má þar m.a. nefna Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing, Guðmund H. Gunnarsson, gæðastjóra Matís á Höfn og Berglindi Viktorsdóttur hjá Ferðaþjónustu bænda.

Lesa meira...
 

Landsfundur NEED verkefnisins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þriðjudaginn 20. október var haldinn Landsfundur NEED verkefnisins þar sem þátttakendur í verkefninu hittust og fóru yfir stöðu mála.

Vegna þess hve víðfermt verkefnið er hér á landi voru fundargestir staðsettir á þremur ólíkum stöðum á landinu eða í Svartárkoti, Egilsstöðum og Höfn Hornafirði. Með aðstoð tækninnar gekk fundurinn þó eins og í sögu og var einkar gagnlegur.

Lesa meira...
 

Gróðurframvinda á Skeiðarársandi - Framhaldsskóli A-Skaftafellssýslu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Miðvikudaginn 14. okt. brugðu 36 nemendur og þrír kennarar frá FAS sér af bæ. Ferðinni var heitið á Skeiðarársand og í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að virða fyrir sér landmótun jökla og hefja rannsóknir á gróðurframvindu á Skeiðarársandi. Þeir sem eiga leið um sandinn hafa eflaust tekið eftir því að gróður hefur aukist verulega á undanförunum árum og þá sérstaklega birki.

Lesa meira...
 

Fuglar á SA-landi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Undanfarna mánuði hafa möguleikar á uppbyggingu fuglaskoðunar í tengslum við ferðaþjónustu á Íslandi hlotið aukna athygli. Á Íslandi finnast fjölmargir staðir sem þekktir eru fyrir óvenju auðugt eða á annan hátt áhugavert fuglalíf en þó er fuglaferðaþjónusta sem slík fremur lítt þróuð hér á landi. Tækifæri Suð-Austurlands eru mikil á þessu sviði, fuglalíf á svæðinu er áhugavert og náttúrufegurð skapar sérstakt umhverfi til fuglaskoðunar.

Lesa meira...
 

NEED verkefni Menntaskólans á Egilsstöðum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

NEED verkefni Menntaskólans á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Egilsstöðum býður í haust upp á áfangann UMH-103. Meginverkefni áfangans er þriggja daga rannsókna- og skoðunarferð um hálendið norðan Vatnajökuls og úrvinnsla úr þeim gögnum sem þau safna í ferðinni. Markmið áfangans er að kynna nemendum svæðið og gefa þeim smjörþefinn af vettvangsvinnu í náttúrufræðum, með áherslu á jarðfræði. Ferðin var farin í byrjun september. Jarðfræðikennari skólans, Helga Jóna Jónasdóttir sá um að skipuleggja áfangann. Tólf nemendur taka þátt í verkefninu.

Lesa meira...
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður