picture9.jpg

Fréttir

Verkefnasýning Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hornfirskir þátttakendur í ráðstefnunniVerkefnasýning Norðurslóðaáætlunarinnar  
Dagana 10.-11. nóvember var haldin alþjóðleg ráðstefna á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins í Ráðhúsi Reykjavíkur. Kynnt voru þau fjölbreyttu verkefni er áætlunin styrkir en þau eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar  og  skapandi greina. Samtals voru kynnt 15 verkefni á verkefnasýningunni.

Eins og áður hefur komið fram stóð ráðstefnan yfir í tvo daga. Fyrri daginn voru settir upp kynningarbásar þar sem aðstandendur verkefnanna kynntu starfsemina fyrir gestum þ.á.m. starfsfólki og ráðherra Iðnaðarráðuneytisins. Seinni daginn hófst ráðstefnan sjálf þar sem frumkvöðlar og skapandi einstaklingar kynntu sig og viðfangsefni sín.

Lesa meira...
 

NEED verkefni Menntaskólans á Egilsstöðum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

NEED verkefni Menntaskólans á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Egilsstöðum býður í haust upp á áfangann UMH-103. Meginverkefni áfangans er þriggja daga rannsókna- og skoðunarferð um hálendið norðan Vatnajökuls og úrvinnsla úr þeim gögnum sem þau safna í ferðinni. Markmið áfangans er að kynna nemendum svæðið og gefa þeim smjörþefinn af vettvangsvinnu í náttúrufræðum, með áherslu á jarðfræði. Ferðin var farin í byrjun september. Jarðfræðikennari skólans, Helga Jóna Jónasdóttir sá um að skipuleggja áfangann. Tólf nemendur taka þátt í verkefninu.

Lesa meira...
 

Verkefnasýning Norðurslóðaáætlunarinnar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

 

Tækifæri til að kynnast fjölbreyttum samstarfsverkefnum Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 10. og 11. nóvember n.k.

Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013  LAVA09 verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur. Opnunartími er 10. nóv. kl. 12:00 – 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 – 18:00 og er sýningin öllum opin. Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar  og  skapandi greina. Á hluta sýningarinnar verður  „lifandi vinnustofa“ skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.

Lesa meira...
 

Google Earth

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Undanfarna mánuði hefur Andreas Zöhrer starfsmaður Háskólasetursins á Hornafirði unnið að gerð vefvísis um jarðfræði Vatnajökulsþjóðgarðs. Um er að ræða nokkurs konar „demó-útgáfu“  þar sem nálgast má greinagóðar upplýsingar um hin ýmsu náttúrufyrirbrigði. Vefsíðan er uppsett á ensku þar sem hún er hluti af samstarfi við hin þrjú samstarfslönd NEED verkefnisins.

Lesa meira...
 

Fuglar á SA-landi: Útgáfa bæklings

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Eitt af fyrstu verkefnum aðstandenda samstarfsverkefnisins Fuglar á Suð-Austurlandi, var að skilgreina heppilega staði til fuglaskoðunar og gera úttekt á aðstöðu, aðgengi og eignarhaldi. Samráð var haft við landeigendur og leitað eftir áhuga þeirra á að taka þátt í verkefninu með því að heimila merkingu fuglaskoðunarstaðar á þeirra landi. Unnið hefur verið að hönnun og efnisöflun fyrir bækling annars vegar og fræðslu- og upplýsingaskilti hins vegar. Bæklingurinn var unninn í samvinnu við NEED verkefnið (Northern Environmental Education Development) en hann er nú tilbúinn og hefur verið dreift til ferðaþjónustuaðila á svæðinu og víðar. Bæklingurinn hefur hlotið góðar viðtökur.

Lesa meira...
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður