picture13.jpg

Fréttir

Fræðsluskjálfti í Þingeyjarsýslu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Skjálftasetrið á Kópaskeri og Gljúfrastofa í Ásbyrgi hafa tekið höndum saman, með aðstoða kennara úr Öxarfjarðarskóla, og útbúið kennsluverkefni í tengslum við heimsókn nemenda á þessi tvö fræðslusetur. Verkefnið gengur út á það að kynna fyrir nemendum starfsemi Skjálftaseturs og Gljúfrastofu með sérstakri áherslu jarðskjálfta og þar af leiðandi Kópaskersskjálftann sem skók Norðausturland 13. janúar 1976. Inn í þetta fléttast svo fræðsla um ýmis jarðfræðifyrirbrigði í nágrenni Kópaskers og Ásbyrgis. Verkefnið er styrkt af NEED (Northern Environmental Education Development), Menningarmálaráði Eyþings og Norðurþingi.

Hreyfingar-fleka Undirbuningur-eldgoss Eldgos
Lesa meira...
 

Óður til hreindýrsins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Málþingið Óður til hreindýrsins á Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls, verður haldið miðvikudaginn 31.mars (daginn fyrir Skírdag). Málþingið fer fram í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Markmiðið er að fræðast almennt um hreindýrin og greina þau tækifæri sem felast í þessari auðlind sem hreindýrin eru. Leitast verður við að málþingið verði þverfaglegt og varpi ljósi á flesta þá þætti sem tengjast hreindýrum, eins og ferðaþjónustu, handverk, mat úr héraði, skotveiði og veiðilendur.

Lesa meira...
 

Hoffellsjökull 2008-2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Um miðjan mars mánuð 2010 var sett upp útiljósmyndasýning við Hoffell í Nesjum, Hornafirði. Mun sýningin standa í mánuð og sýna myndir hennar breytingar á jöklinum milli ára og árstíða og tengjast þannig loftlagsbreytingum í heiminum í dag.
Sýningin er sett upp í tengslum við Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls og er unnin af ljósmyndaranum Þorvarði Árnasyni.

Lesa meira...
 

Jarðfræðivefur NEED verkefnisins

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í október á síðasta ári birtist hér frétt um vef um jarðfræði í vatnajökulsþjóðgarði. Þar mátti einnig finna tengla inn á Google Earth. Þessi vefur hefur nú verið lagður niður og færður tímabundið á vefsvæðið www.need.is/iceland

Unnið er að nýrri og notendavænni uppsetningu á þessum vef og verður hún vonandi tilbúin á næstu mánuðum.

 

Loftslag og loftlagsbreytingar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Áhugaverða grein eftir þá Tómas Jóhannesson og Halldór Björnsson á veðurstofu Íslands þar sem þeir fjalla um nokkrar staðreyndir um Loftslag og Loftlagsbreytingar má finna á eftirfarandi vefslóð http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1805 

 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður