jakapan2 juli 20091.jpg

Austursvæði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Brúarásskóli

Verkefni Brúarásskóla fjallar um útivist og uppgræðslu innan þjóðgarðs. Aðal áhersla verður lögð á uppfok og möguleika á uppgræðslu. Nemendurnir verða fræddir um gróðursvæði og þeim gefin ráð um hvernig stöðva má landeyðingu. Þá munu þeir vinna umhverfis- og samanburðarverkefni. Fyrirhugð er að námskeiðið taki 1-2 daga og mun ferðin vera farin haustið 2010. Verkefnið verður unnið í samstarfi við íbúa í Möðrudal og Landgræðsluna.

Ferðaleiðir í Vatnajökulsþjóðgarði

Þekkingarnet Austurlands hélt árið 2008 námskeið um svæðisleiðsögn. Hugmyndin er að vinna áfram með það námskeið og þróa fyrir einstaklinga sem vilja fræðast um heimabyggð og leiðsegja ferðamönnum í stuttum ferðum. Verkefnið verður unnið í samvinnu við sérfræðinga í gerð fræðsluefnis og fyrirhugað að námskeiðið verði haldið haustið 2010.  

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Í menntaskólanum var boðið upp á námskeiðið UMH103 haustið 2009 en þema áfangans var umhverfismál tengd Vatnajökulsþjóðgarði. Hluti áfangans var námsferð um norðursvæði þjóðgarðsins. Áhersla var lögð á jarðfræði svæðisins, s.s. eldvirkni, jöklafræði, ísaldarjarðfræði, jöklaminjar, vatnafar o.fl. Í lok námskeiðsins héldu nemendur námsstefnu þar sem niðurstöður ferðarinnar og rannsóknir tengdar henni voru kynntar. Fyrirhugað er að endurtaka námskeiðið haustið 2010 og þá með ýmsum endurbótum, svo sem tengingu við aðra framhalds- og menntaskóla. Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.

Náttúrustofa Austurlands

Verkefni Náttúrustofunnar kallast Hreindýr í Vatnajökulsþjóðgarði og felst það í samantekt á efni tengdu hreindýrum, s.s. aldursgreining og skoðun á lifnaðarháttum þeirra. Gera á efnið áhugavert og aðlaðandi fyrir ferðamenn í formi bæklings og á veraldarvefnum. Fyrirhugað er að efnið verði tilbúið í október 2010.
 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður