Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
Atvinnuþróunarfélagið mun standa fyrir námskeiði og vettvangsferð fyrir ferðaþjónustuaðila um jarðfræðilega sérstöðu Jökulsárgljúfra og Öxafjarðar. Þannig fæst aukin þekking á svæðinu meðal ferðaþjónustuaðila sem þeir geta í framhaldi af því miðlað áfram til ferðamanna. Þar með er kominn hvati fyrir þá til að bjóða uppá skoðunarferðir fyrir ferðamenn. Einnig er hugsanlegt að unnin verði samantekt á efninu fyrir ferðaþjónustuaðila sem þeir geta nýtt sér í kynningu á svæðinu. Námskeiðið mun fara fram haustið 2010 og vera staðsett í Vatnajökulsþjóðgarði þar sem boðið verður upp á fyrirlestra fyrir hádegi og leiðsagðar vettvangsferðir með sérfræðingum seinnipart dags. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga, Náttúrustofu Norðausturlands og Vatnajökulsþjóðgarð. Atvinnuþróunarfélagið stóð einnig fyrir ráðstefnu um jarðferðamennsku (geotourism) í september 2009. Þar var fenginn til landsins frumkvöðullinn David Newsome en hann er sérfræðingur á þessu sviði og kynnti hann sínar hugmyndur um jarðferðamennsku fyrir ferðaþjónustuaðilum og öðrum áhugasömum.Náttúrustofa Norðausturlands
Haustið 2007 sóttu forsvarsmenn þessa verkefnis námskeið í útikennslu í Tékklandi og í kjölfar þess fikruðu þau sig áfram með námskeiðshald í útikennslu fyrir kennara. Þessu námskeiði er nú lokið en það var 20 tíma námskeið um útikennslu og útinám, ætlað kennurum í grunn- og framhaldsskólum. Námskeiðið gæti þó nýst fleirum sem sinna fræðslu barna utandyra eins og landvörðum. Námskeiðið var haldið í Ásbyrgi dagana 13. og 14. ágúst 2009. Alls tóku 10 kennarar og 3 landverðir þátt í námskeiðinu en markmiðið var að fá kennara til að tileinka sér útikennslu sem kennsluaðferð. Þema í útikennslunni var myndun og mótun umhverfis og náttúruupplifun.Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.Skólabúðirnar í Kiðagili
Í Skólabúðunum í Kiðagili er unnið að umhverfisfræðsluverkefni. Verkefnið fjallar fyrst og fremst um hálendis- og fjallaferðir, útivist og náttúru. Byggt verður á grunni „Fjallakofans“ sem er skólabúða verkefni í Kiðagili. Tekið er á móti nemendum og farið yfir grunnþætti jarðfræði, landafræði og sögu svæðisins sem blandað verður við þjóðsögur. Unnið er með kort og áttavita ásamt þeim búnaði sem nauðsynlegur er á fjöllum. Í framhaldi af þessu er dvalið í eina nótt á hálendinu við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem nemendur læra að umgangast hálendið og fjallakofa sem og að dvelja á fjöllum í slíkum skála. Verkefnið verður unnið í samvinnu við fræðasetrið á Svartárkoti. Ferðin hefur nú þegar verið prufukeyrð en fyrirhugað er að endurtaka hana í september 2010 með ýmsum endurbótum. Einnig verður haldið stefnumót um fræðandi ferðaþjónustu á Kiðigili 20. - 22. september 2010. Stefnumót þetta hefur hlotið nafnið Ráðsmiðja þar sem um er að ræða sambland af ráðstefnu, námssmiðju og opnum fundi. Ætlunin er að skapa vettvang fyrir ferðaþjónustuaðila og fræðimenn til að ræða saman um þróun fræðandi ferðþjónustu á Íslandi í dag. Fræðimenn koma úr ýmsum áttum en í dagskrá er einnig gefið gott svigrúm til umræðu ásamt því að farið verður í vettvangsferðir um Bárðardalinn. Dagskrá Ráðsmiðjunnar má nálgast á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.Vatnajökulsþjóðgarður – Jökulsárgljúfrum
Verkefni Vatnajökulsþjóðgarðs er unnið í samstarfi við Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri en þessar stofnanir hafa tekið höndum saman og útbúið kennsluverkefni í tengslum við heimsókn nemenda á þessi tvö fræðslusetur. Verkefnið gengur út á það að kynna fyrir nemendum starfsemi Skjálftaseturs og Gljúfrastofu með sérstakri áherslu jarðskjálfta og þar af leiðandi Kópaskersskjálftann sem skók Norðausturland 13. janúar 1976. Inn í þetta fléttast svo fræðsla um ýmis jarðfræðifyrirbrigði í nágrenni Kópaskers og Ásbyrgis. Nú þegar hefur verið tekið á móti einum skólahópi í tengslum við þetta verkefni en sá næsti er væntanlegur í september 2010.Nánari upplýsingar um þetta verkefni má finna í skýrslu á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.











