oraefajkl pan juli 20091.jpg

Fuglar á SA-landi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Undanfarna mánuði hafa möguleikar á uppbyggingu fuglaskoðunar í tengslum við ferðaþjónustu á Íslandi hlotið aukna athygli. Á Íslandi finnast fjölmargir staðir sem þekktir eru fyrir óvenju auðugt eða á annan hátt áhugavert fuglalíf en þó er fuglaferðaþjónusta sem slík fremur lítt þróuð hér á landi. Tækifæri Suð-Austurlands eru mikil á þessu sviði, fuglalíf á svæðinu er áhugavert og náttúrufegurð skapar sérstakt umhverfi til fuglaskoðunar.

Ávinnungur af fuglaferðþjónustu á Íslandi er einkum með tvennum hætti: Í fyrsta lagi fást auknar tekjur til ferðaþjónustunnar með betri nýtingu á jaðartíma en fuglalíf á Suð-Austurlandi er áhugaverðast að vori og hausti. Í öðru lagi eykur fuglaskoðun þekkingu á umhverfinu og eflir umhverfisvitund og svarar þannig ört vaxandi þörf fyrir fræðslutengda og sjálfbæra ferðaþjónustu. Víða í nágrannalöndum okkar má finna stóra hópa áhugafólks um fuglaskoðun sem ætla má að sæktu í auknum mæli til Íslands ef ráðist yrði af krafti í uppbyggingu á fuglaferðaþjónustu hérlendis og kynningu á henni á meðal nýrra erlendra markhópa. Jafnframt má telja að stór hluti þeirra ,,almennu“ ferðamanna sem sækja Ísland heim á ári hverju hefði áhuga á því að nýta sér nýja og/eða bætta þjónustu og aðstöðu til fuglaskoðunar hérlendis í einhverjum mæli.
Á haustdögum 2008 kviknaði hugmyndin að verkefninu Fuglar á Suð-Austurlandi. Í kjölfarið var myndaður starfshópur skipaður einstaklingum frá Sveitarfélaginu Hornafirði og Djúpavogshreppi. Ákveðið var að stofna til klasasamstarfs með það að markmiði að efla ferðaþjónustu tengda fuglaskoðun. Starfshópurinn vann að þróun og mótun verkefnisins og fundaði reglulega til að móta stefnu verkefnisins og skilgreina helstu þætti þess.
Síðastliðið vor var boðað til opins stofnfundar og var hann vel sóttur. Kosið var í fimm manna stjórn sem síðan hefur starfað með það að markmiði að efla fuglaskoðun á Suð-Austurlandi. Stjórn skipa Björn Gísli Arnarson formaður, Laufey Helgadóttir ritari, Bryndís Reynisdóttir gjaldkeri og meðstjórnendur eru Regína Hreinsdóttir og Albert Jensson. Skoðunarmenn félagsins eru Jóna Ingólfsdóttir og Björn Hafþór Guðmundsson. Á stofnfundinum gerðust þrettán fyrirtæki og sjö einstaklingar stofnfélagar.

 

Háskóli Íslands

Þekkingasetur ÞingeyingaNorðurþing

Þekkingarnet AusturlandsFljótsdalshérað

Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluSveitarfélagið Hornafjörður

KirkjubæjarstofaSkaftárhreppur

Vatnajökulsþjóðgarður