Fjallahópur Ríkis Vatnajökuls
Í klasanum Ríki Vatnajökuls er unnið að því að gera Sveitafélagið Hornafjörð að einu mesta fjallamennskuhéraði á landinu, þ.e.a.s. markviss vinna að fræðslu fyrir heimamenn, markaðssetningu o.fl. Verkefnið er umfangsmikið en fyrstu afurðir verkefnisins munu væntanlega líta dagsins ljós haustið 2010.Framhaldsskóli – Austur Skaftafellssýslu
Verkefni framhaldsskólans eru af fernum toga. Í fyrsta lagi verður nemendum boðið upp á grunnnám í fjallamennsku. Námskeiðið má jafnframt þróa á þann hátt að það veiti ákveðin grunnréttindi í fjallaleiðsögn. Nemendur auka þá við þekkingu sína á svæðinu og jafnframt er námskeiðið grundvöllur fyrir frekara námi á þessu sviði. Verkefnið verður unnið í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn og mun að öllum líkindum hefjast í október 2010. Annað verkefnið snýr að náttúrufræðinámi, þ.e. jarðfræði, náttúrufræði og líffræði. Í nýrri námsskrá verða útfærð þrjú stig náttúrufræðináms sem krefst vinnu á vettvangi. Í verkefninu er því um að ræða styttri ferðir í nágreni Hafnar, nokkurra sólarhringa vettvangsferðir og sjálfstæða úttekt nemenda eða rannsókn á t.d. náttúrufari, gróðri eða fuglum. Eftir að verkefnunum lýkur hafa safnast saman góðar upplýsingar um svæðið. Þetta verkefni verður unnið í samvinnu við aðra framhaldsskóla innan NEED verkefnisins og svæðin sem heimsótt verða flest innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Haustið 2009 héldu nemendur framhaldsskólans í vettvangsferð á Skeiðarársand þar sem þeir framkvæmdu ýmiskonar rannsóknir er tengjast gróðurframvindu á sandinum. Sú ferð var endurtekin með ýmsum úrbótum í september 2010. Þá hélt annar hópur nemenda í vettvangsverð í Lón í apríl 2010, þar sem álftir voru taldar og ýmsar atferlisrannsóknir voru framkvæmdar. Þriðja verkefni framhaldsskólans er umhverfisnám þar sem frekari þróun var á því námi sem þegar var til staðar. Hér var unnið með mastersnemanum Hildi Þórsdóttur og stóðu nemendur uppi eftir námskeiðið með aukna umhverfisvitund og hafa grunn fyrir frekara nám á þessu sviði. Þessi áfangi var kenndur vorið 2009.Síðasta verkefni framhaldsskólans hefur hlotið vinnuheitið Félagslíf og ferðaþjónusta en það byggist upp á því að nemendur kynnist starfsemi ferðaþjónustuaðila á svæðinu og auki þannig við vitund sínu um umhverfið, þá bæði umhverfis- og atvinnulega séð. Ríki Vatnajökuls verður í samstarfi við framhaldsskólann í þessu verkefni. Þann 6. nóvember 2009 fóru 15 nemendur frá FAS í Skaftafell. Tilgangur ferðarinnar var að fara á námskeið í ísklifri. Farið var af stað seinni part föstudags og námskeiðið hófst þá um kvöldið með fyrirlestri og grunnkennslu í hnútum og hvernig klifurbúnaður virkar. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Laugardagsmorguninn var tekinn snemma. Byrjað var að æfa klifur og var það gert í Hnappavallaklettunum sem er eitt besta klifursvæði landsins. Þegar allir voru orðnir þrælklárir var farið upp á jökul þar sem klifrað var í ís og almenn tækni við jöklagöngu var kennd.Sunnudagurinn var einnig tekinn snemma og farið í sprungubjörgun, fyrst var farið yfir grunnatriðin í Skaftafelli en að því loknu var farið upp á jökul í alvöruna. Þá sigu krakkarnir ofan í sprungu og þeir sem uppi voru þurftu að nota það sem þeir höfðu lært til þess að bjarga hinum upp úr sprungunni. Krakkarnir stóðu sig allir með prýði og við getum öll verið stolt af þessu hóp.Fyrirhugað er að endurtaka þessa ferð með ýmsum úrbótum í september 2010.
Fuglaskoðun á SA-landi
Á Höfn og Djúpavogi er nú þegar hafið samstarf um fuglaskoðun. Aðkoma NEED verkefnisins í því samstarfi snýr helst að gerð korts eða bæklings þar sem merktir eru inn allir helstu fuglaskoðunarstaðir á svæðinu. Þá er einnig hugsanlegt að fræðsluskilti verði útbúin á þeim stöðum. Ábyrgð á þessum hluta verkefnisins er í höndum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði ásamt ýmsum hagsmunaaðilum á Djúpavogi, í sveitarfélaginu Hornafirði og Ríki Vatnajökuls.Kortið var gefið út haustið 2009 og aðgengilegt á heimasíðu NEED verkefnisins www.need.is.
Grunnskóli Hornafjarðar
Í Grunnskóla Hornafjarðar er unnið að því að samræma vettvangsferðir nemenda á öllum stigum. Verkefnið snýst því um að sköpuð verði heildstæð sýn yfir vettvangsferðirnar og horft á þær sem eina heild þar sem hver ferð byggir á annari. Þannig verða ferðirnar markvissari. Heimsótt verða áhugaverð svæði Vatnajökulsþjóðgarðs og lögð áhersla á að auka þekkingu nemenda, m.a. í jarðvísindum. Elstu nemendur skólans fóru í ferð í tengslum við þetta verkefni haustið 2009 þar sem haldið var inn á Lónsöræfi. Fyrirhugað er að endurtaka þessa ferð með smávægilegum breytingum haustið 2010.Guðlaug Úlfarsdóttir vinnur nú að mastersverkefni um útinám og ætlunin er að verkefni grunnskólans og Guðlaugar verði unnin í sameiningu.
Hagnýt menningarmiðlun
Námskeið var haldið á Höfn fyrir mastersnema HÍ í hagnýtri menningarmiðlun í febrúar 2009. Fjallað var almennt um menningar- og fræðslutengda ferðaþjónustu og hvaða hugmyndafræði býr þeim að baki. Einnig var rætt um tengsl þeirra við sjálfbæra/visthæfa ferðaþjónustu og athugað að hversu miklu leyti markmið þeirra geti farið saman. Megináhersla var lögð á miðlun upplýsinga og þekkingar sem varðar annars vegar menningu og sögu og hins vegar náttúru og umhverfi, svo og efni sem skarast á milli þessara sviða. Fjallað var um helstu leiðir sem koma til greina við miðlun af þessum toga og rætt um kosti þeirra og galla, m.a. út frá ólíkum markhópum. Hugað var að þeim viðmiðum og gæðastöðlum sem æskilegt sé að fylgja í menningar-, fræðslu- og umhverfistengdri ferðaþjónustu. Fjallað var um þýðingu slíkrar ferðaþjónustu fyrir ímynd svæða, bæði eins og hún snýr að heimamönnum og aðkomumönnum. Tekin voru nokkur raundæmi úr héraðinu til skoðunar og greiningar, þ.á m. gestastofa Þjóðgarðsins í Skaftafelli, Þórbergssetrið á Hala og Jöklasýningin á Höfn. Einnig var fjallað um miðlun á sagnaarfi Austur-Skaftafellssýslu. Námskeiðið var unnið í samvinnu Fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, Háskóla Íslands og ýmsa ferðaþjónustuaðila á svæðinu.Hoffell
Unnin hefur verið ýmis undirbúningsvinna fyrir fræðsluefni er aðgengilegt verður í Hoffellsstofu en hún mun rísa í náinni framtíð.
Jarðfræðikort í Ríki Vatnajökuls
Fyrirhugað er að útbúa kort þar sem áhugaverðir jarðfræðistaðir verða merktir inn á og þannig gerðir aðgengilegir fyrir ferðamenn. Kortið verður byggt upp á sama hátt og fuglabæklingurinn er áður hefur verið lýst. Sambærileg kort verða útbúin fyrir öll samstarfslönd NEED verkefnisins. Fyrirhugað er að kortið verði gefið út í október 2010.
Landfræðilegur gangagrunnur
Áhersla hefur verið lögð á að útbúin verði landfræðilegur gagnagrunnur fyrir sveitarfélagið Hornafjörð þar sem jarðfræði verður megin þemað. Háskólasetrið á Hornafirði vinnur nú að þessu verkefni í samráði við sérfræðinga. Drög að þessum vef hefur nú verið gerður aðgengilegur á netinu undir léninu www.need.is/jardvefur.
Huldusteinn
Huldusteinn er í einkaeigu hjónanna Ásbjörns Þórarinssonar og Vigdísar Vigfúsdóttur. Steina- söfnun hefur verið aðaláhugamál þeirra í gegnum tíðina. Þann 23.apríl 2009 hafði gamla sundlaug Hafnar lokið hlutverki sínu og húsið auglýst til sölu. Sáu þau tækifæri í að láta drauma sína rætast og keyptu húsið í maí 2009. Þann 12.júní 2010 eftir miklar endurbætur á húsnæðinu opnuðu þau steinasafnið Huldustein. Í safninu er að finna helstu steintegundir á Íslandi.Leikskólinn Krakkakot
Á leikskólanum Krakkakoti er unnið eftir heilsustefnu Urðarhóls en hún gengur út á hreyfingu, næringu og listir en að auki leggur Krakkakot áherslu á umhverfi og náttúru. Börnin læra m.a. að flokka rusl og hugsa um matjurtagarð. Á Krakkakoti eru unnið að tvennskonar verkefnum. Annars vegar varfarið með nemendur skólans í ferðir um nágrennið og greina plöntur. Áfram var svo unnið með plönturnar um veturinn 2009-2010. Þá var farið með hóp nemenda í vettvangsferð að Kvískerjum í Öræfum vorið 2010.Málþing um hreindýr
Í tengslum við Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls var haldið málþingið Óður til hreindýrsins í lok mars mánaðar 2010. Þar var meðal annars fjallað um lifnaðarhætti, sögu hreindýra á Íslandi og ferðaþjónustu er tengist þessum dýrum. Margir sérfræðingar á sínu sviði tóku til máls og var málþingið því fjölbreytt og vakti áhuga margra. Hér var fyrst og fremst verið að horfa til vitundavakningar almennings á þessum tignarlegu dýrum.
Málþingið var skipulagt af ferðaþjónustuklasanum Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetrið á Hornafirði.
Umhverfis- og skipulagsþing í Sveitarfélaginu Hornafirði
Á haustdögum 2009 var haldið málþing um umhverfis- og skipulags í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þingið var tvískipt þar sem fyrri daginn var horft til ferðaþjónustunnar á landinu í heild sinni og gæði umhverfis- og skipulagsmála rædd. Frummælendur komu úr ýmsum áttum og má þar m.a. nefna Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing, Guðmund H. Gunnarsson, gæðastjóra Matís á Höfn og Berglindi Viktorsdóttur hjá Ferðaþjónustu bænda. Seinni dag málþingsins var unnið með Ríki Vatnajökuls þar sem tveir vinnuhópar voru starfsræktir. Rætt var um umhverfisleg, efnahagsleg og samfélagsleg viðmið & markmið fyrir þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls, sem og samskipti Ríkis Vatnajökuls við Vatnajökulsþjóðgarð. Uppúr niðurstöðum vinnuhópanna er áætlað að vinna Gæða og umhverfisstefnu fyrir klasann.Að málþinginu stóðu Háskólasetrið á Hornafirði, Ríki Vatnajökuls og Sveitafélagið Hornafjörður.
Í framhaldi af þinginu var ákveðið að Háskólasetrið á Hornafirði tæki þátt í mótun sjálfbærnistefnu fyrir matar, menningar og ferðaþjónustuklasann Ríki Vantajökuls. Verður sú stefna mótuð á haustdögum 2010.
Umhverfis og auðlindafræði HÍ
Í júní 2010 kom hópur nemenda úr Umhverfis og auðlindafræði námi við Háskóla Íslands í vettvangsferð austur á Höfn. Þar kynntust nemendur stjórnunarháttum í friðlýsum svæðum og kynntu sér kosti og galla við stjórnunarhætti á suðausturlandi.
Útiljósmyndasýning við Hoffell – Hopun jökla
Um miðjan mars mánuð 2010 var sett upp útiljósmyndasýning við Hoffell í Nesjum, Hornafirði. Stóð í mánuð og sýndu myndir hennar breytingar á jöklinum milli ára og árstíða og tengist þannig loftlagsbreytingum í heiminum í dag.
Sýningin var sett upp í tengslum við Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls og var unnin af ljósmyndaranum Þorvarði Árnasyni.
Vatnajökulsþjóðgarður – Skaftafelli
Þrenn verkefni eru fyrirhuguð í Skaftafelli. Í fyrsta lagi var haldið staðháttanámskeið fyrir landverði á svæðinu vorið 2010 en þannig má auka þekkingu þeirra á svæðinu. Allir landverðir fara í gegnum námskeið þar sem þeir læra um það hvað felst í því að vera landvörður, einnig læra þeir undistöðuatriði í náttúrutúlkun sem og skyndihjálp. Aftur á móti er ekki gerður greinarmunur á landvörðum er starfa í Skaftafelli eða Jökulsárgljúfri þó landslagið sé ólíkt. Þannig vantar oft töluvert upp á staðháttakunnáttu landvarða. Úr þessu má bæta með námskeiði eins og því sem hér um ræðir. Þar með er líklegra að landverðirnir miðli réttum og góðum upplýsingum um staðhætti til ferðamanna. Fræðslustígur var útbúinn í Skaftafelli. Hugmyndin var að setja upp skilti við Vatnadrekann svokallaða og útskýra mikilvægi hans áður en jökulárnar voru brúaðar í Öræfunum. Annað skilti fór upp við Skaftafellsjökul þar sem farið var yfir sögu hans og jarðfræði. Síðasta verkefnið sem fyrirhugað er í Skaftafelli er þróun á fræðsluefni fyrir börn er heimsækja þjóðgarðinn, bæði gesti sem heimsækja þjóðgarðinn yfir sumartímann og eins skólahópa sem koma í lengri heimsóknir.Viðtöl við ferðamenn í Vatnajökulsþjóðgarði
Í ágústmánuði 2010 voru tekin viðtöl við ferðamenn á suður og vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar var leitað svara við margvíslegum spurningum sem varða framþróun ferðaþjónustu og þjóðgarðsstarfs, m.a. hvað varðar vetrarferðamennsku.
Háskólasetrið á Hornafirði stendur fyrir þessari rannsókn í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og ferðaþjónustuklasa á svæðinu.











